tisa: Það er svo gaman að vera ég

laugardagur, apríl 08, 2006

Það er svo gaman að vera ég

Páskafrí at last.

Markmið:
Slá met í að sofa
Slá met í að borða páskaegg

Búið, þetta er nóg til fylla eitt stk. páskafrí.


En annars er nákvæmlega ekkert að gerast. Alls ekkert. Vá hvað ég er boring...

Ég hef ekkert að segja. . . Ég upplifi aldrei neitt skemmtilegt.
Djók.

Ég geri bara skemmtilega hluti. Að mínu mati allavegana.


Listi yfir skemmtilega hluti sem ég hef gert yfir líf mitt (valin atriði, ég skrifa ekki allt það myndi taka langan tíma):

Ég og Ásgerður stilltum sjónvarpið á MUTE og töluðum inn á

Ég og Esther ákváðum að elta einhverja gaura á Hondu á bílnum hennar

Ég fór í skallakeppni við Magga Dan ... og við rotuðums næstum því.

Ég var í leik sem kallast Quadra Pop á símanum og náði yfir 400.000 stigum.

Ég og Magga tókum einu sinni fötur og skóflur og börðum á fötunar meðan við gengum niður götuna og sungum Öxar við ána af öllum líf og sálar kröftum, í von um að fólk gæfi okkur pening

Ég keyrði næstum yfir pabba hans Magga

Ég og Esther fórum labbandi í bílalúgu

Ég fór í ruðning við mjög svo ölvaðan mann sem var þrítugur og samkynhneigður, hann rústaði mér.

Ég flúði úr leikfimi með því að hoppa út, en nennti ekki lengra en rétt út úr salnum, leikfimikennarinn fann mig...

Ég fór í Tívólí, bara til að fá mér Candy Flos

Ég sagði brandara um epli og tómat sem ég man ekki hvernig er og hló að sjálfri mér í klukkutíma.

Ég og Íris (sem er næstum því frænka mín) flokkuðum öll Trivial Pursuit spjölgin hennar, það er nefnilega tala neðst á hverju spjaldi.

Maggi dáleiddi hundinn sinn fyrir, það var mjög gaman. Hundurinn varð geðveikur og var gefinn stuttu seinna ...

Ég er kaldhæðin við fólk sem skilur ekki kaldhæðni, það er mjög gaman

Ég, Kristjana, Eva og Freyja tölum fyrir auglýsingamódel í tímaritum

Það er ógeðslega gaman að vera ég!
Tinna - leti er lífstíll

tisa at 21:48

4 comments